Call
NEVER TRUST A COP!
Stórslysið er raunverulegt fyrir augum okkar og loftslagsbreytingar eru eitt af mörgum einkennum þess. Óumflýjanlegt tal þeirra sem koma að COP15 um að ,,bjarga plánetunni frá loftslagshörmungunum“ er fyrst og fremst margbrotin blekking, gerð til þess að dulbúa raunverulegan tilgang COP15 fundarins: Að endurreisa réttlætingu hnattræns kapítalisma með því að setja af stað nýtt tímabil hins ,,græna“ kapítalisma. Ný orðræða þess að ,,bjarga loftslaginu“ var sett af stað til að réttlæta kúgun valdsins, víggirt landamærin og nýlendustríðin um auðlindir. Til að klæða keisarann í ný föt. Viðbrögð okkar við þessum skítugu lygum er án málamiðlanna – algjört NEI! við kerfinu.
Það þarf að hrista upp í fleiru en sumarfríshefðum okkar til að plánetan sem við lifum á verði lifanleg í framtíðinni. Það væri heimskulegt að binda vonir okkar við sama fólkið og heldur áfram að drepa jörðina fyrir peninga. Í Kaupmannahöfn mun það rökræða um hvernig hægt sé að skapa markað til að gera andrúmsloftið að söluvöru og menga það svo, neyða milljónir manna til að yfirgefa heimili sín, svo hægt sé að græða á því að eyðileggja það sem eftir er af jörðinni. Ríkisstjórnir og stórfyrirtæki munu ekki fórna eigin gróða fyrir minnkun kolefnislosunar, nema í mesta lagi til að geta skapað nýtt stigveldis-stjórnfyrirkomulag fyrir sig sjálf.
Öll orðræðan um ,,loftslagshörmungarnar“ og ,,efnahagskreppuna“ er tortryggilegur vettvangur, skapaður af spunameisturum ríkisins, til þess gerður að afneita hörmungunum sem hin sjálfskilgreinda siðmenning umvefur allt og alla. COP15 fundurinn mun einungis reyna að fela stríðið sem kapítalisminn heyjir gegn öllu lífi á plánetunni; stríð sem breiðst hefur út um allan hnöttinn í það minnsta síðustu 500 árin; stríð sem umvefur meira að segja höfin og andrúmsloftið. Í miðju stríði talar maður ekki um stjórnun og ,,tæknilegar lausnir“. Þú berst ekki stríði með því að halda því fram að stríðið sé ekki til staðar, með því að neita að horfast í augu við kúgun og verða samsekur í því að samþykkja fölsk loforð um smáborgaralega friðsemd.
Í staðinn áttar maður sig á óvininum, velur sér stöðu og berst.
Aðeins með því að losa okkur við þau sem halda því fram að þau tali fyrir okkar hönd og með því að yfirstíga hugmyndafræðina um stanslausan fjárhagslegan gróða, iðnvædda framleiðslu og neyslu, getum við tekið stjórn á eigin lífi og plánetunni.
Það er kominn tími til að segja: Við munum vísvitandi ráðast gegn öllum þeim strúktúrum sem halda uppi COP15 fundinum. Við munum brjótast í gegnum lögreglulínurnar. Við munum neita að semja um nokkurn skapaðan hlut við stríðsæsingar-ríkisstjórnir og fjölmiðla. Við munum neita að standa með samtökum sem hafa selt sig og hugmyndaræði sína og einnig öllum þeim sem halda að þeir stjórni mótmælunum. Við neitum öllum ríkisstjórnum og allri stjórnun, og munum því ekki bara afbyggja réttlætingu þeirrar stjórnunar sem nú eru til staðar.
Það er kominn tími til að segja að við trúum því að uppreisnar sé þörf til að raunverulega hefja þær breytingar sem allir bíða í örvæntingu. Með því að berjast saman í algjörri andstöðu við þau sem hafa völdin, gætum við fengið nasasjón af þeirri auðlegð og öllum þeim möguleikum sem eru til staðar þegar fólk frá öllum heiminum deilir saman hugmyndum sínum og reynslu.
Áfram alþjóðlegar andófssveitir! Nú er það borgarastyrjöld en ekki loftslagsupplausn!